Sirrý » one day at a time...
Litla Prinsessan
12.10.2005 21:17:33 / Sirrý

Ég er

Búin að ákveða að skipta um síðu

www.123.is/sirry  þar er mig að finna!



þetta eru úrslitin úr síðustu skoðanakönnuninni hér á síðunni... það finnst greinilega engum tyggjó gott.. hmmm skrítið mér finnst það einmitt ómissandi! En jæja

I'll see you on the other site;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.10.2005 23:51:20 / Sirrý

jæja nörrinn þinn!

Er búin að vera e-ð að prófa nýtt blogg hjá 123... hef ábyggilega prófað blogg hjá öllum sem bjóða upp á það ;) haha - en mér finnst þetta soldið flott blogg dæmi... þið megið kíkja ef þið hafið áhuga... tell me what you think ;)

www.123.is/sirry


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.10.2005 22:12:42 / Sirrý

Dance with me...

Æi það er e-ð svo gaman...

Litla mús aaalveg steinsofandi - það er svo gaman af töktunum í henni... finnst hún e-ð svo "fullorðinsleg" þegar hún situr á hnjánum og er að leika, með dótakassa til stuðnings! hún datt reyndar á höfuðið áðan en það var ekkert alvarlegt ;) reikna fastlega með því að hún verði svolítið regluleg í dettingum... miðað við hvað hún er að flýta sér að gera allt!

Hitti Rebeccu mína í dag... kíktum á café Catalina(já ég veit!) og svo heim að knúsa litlu krús :) fórum svo í bíltúr að sækja Heklu beibí og svona ýmislegt... Það var alveg fjör sko - svo þegar ég kom heim var Daníel kominn í heimsókn :)

Ég var að horfa á "what not to wear" og ein konan sem átti að breyta klæðnaði sínum fór að gráta og ég skildi ekki alveg hvers vegna! ég myndi allaveganað ekki fara að gráta ef einhver tæki mig að sér og kenndi mér að klæða mig... hvað þá ef manneskjan tæki sig til og gæfi mér 2000pund(afhverju er ekki pund merki á lyklaborðinu mínu?) til þess að versla fyrir og kæmi svo og hjálpaði mér í þokkabót... ætla bara að voan að það sé einhver góðhjartaður þarna úti sem les þetta og tekur mig að sér.... ef svo er þá heiti ég Sirrý og síminn er 6974344 ;) haha

Mig klæjar sko útum allt bak og allsstaðar á maganum og lærunum... Fór í ljós og manneskjan sem sofnar nánast aldrei í ljósum... sofnaði RIGHT AWAY!!! þannig að ég var í 20mín í ljósum... og fyrir er ég næpuhvít... hef bara aldrei brunnið svona illa - leið meira að segja svo illa í morgun að ég fór ekki í ræktina! það er skandall og ég var brjálað sár!! hnusss að brenna - eins og ég hafi aldrei farið í ljós áður!!! en jæja, þetta er að jafna sig núna svo ég get hlegið að þessu!

Gestabók - takk ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 14:23:47 / Sirrý

erase

Tveir nýjir tenglar komnir.... leitiði!! haha - svona gestaþraut skilurru?!

Annars var ég búin að skrifa voða fínan pistil... svo hringdi síminn... svo fór Margét að væla... og við steeumst við tölvuna á meðan ég spjallaði í símann.... svoooo komst hún í lyklaborðið og á einhvern undraverðan hátt þurrkaðist allt út!!! veit ekki hvernig hún fór að þessu!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2005 11:27:59 / Sirrý

ný skoðanakönnun...

OG það sem meira er.... það er hægt að fara og kíkja á myndir af hinum yndislegu tvíburum :) á www.barnanet.is/valurornogernirelinú og ef þetta er of flókið fyrir ykkur greyin mín... þá er linkur hér til hliðar í dálknum "prinsar og prinsessur" - þeir eru prinsar :D hahahahaha


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2005 17:11:32 / Sirrý

Smaustur

jæjajæja - ég er að hugsa um að blogga aðeins... þó svo ég nenni því ekki beint!!!

Ég er stödd á Kirkjubæjarklaustri... Við erum að bíða eftir að litla dýr vakni svo við getum farið að tygja okkur í bæinn aftur... hún sefur bara svo ofboðslega vel hér í sveitinni að maður veit varla hvað skal gera...

ég er ekki búin að gera margt merkilegt síðan ég kom... annað en að bíða eftir að Margrét vakni... hún er nú þegar búin að sofa af sér heimsóknir að Hunkubökkum... svo vorum við að hugsa um að kíkja við hjá henni Sólrúnu frænku en... viti menn Margrét var sofandi!!

Binni er alveg búinn að vera aktívur... laga bíl fyrir pápa sinn og þrífa okkar bíl(lét sig hafa það!) og hitta Sigga G. hann átti smá frítíma þar sem hans heittelskaða var ekki á svæðinu!! en mér er slveg sama... ég er í "fríi" og ÞARF því ekki að gera neitt... ekki ennþá! ;)

Sakna Þingeyringa svolítið mikið.... spurning um að skreppa í heimsókn þangað fljótlega... :):)

Svo var ég svooooo klár - búin að ákveða að gefa Heklu gjöf og allt - búin að ræða málin við múttu mína og svona... tilkynni Rebeccu að ég ætli að gefa litlu skvís gjöf - og hún giskaði í 1.tilraun á hvað það er :S hnussss... Langt þangað til ég segi henni frá gjöf næst!!

Búin með kvótann - það er sko sunnudagur!!




» 4 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 12:31:56 / Sirrý

I'm thinkin' about my doorbell...

... When ya gonna ring it, when ya gonna ring it Yeah...

jæja nú er ég komin aftur! algjörlega!!! alveg þangað til ég fer austur á föstudaginn!!

aðalástæða bloggleysis er sennilega - tölvuleysi... eða tölva ekki í sambandi!!! Raggi kom nefninlega íheimsókn á helginni og smellti upp eins og einu herbergi í íbúðinni okkar! já ég er að segja ykkur það að það var pláss!!! þetta er kannski ekki stærsta herbergi í heiminum eeen það dugar... Skelltum svo upp plötu í endann þannig að nú er komið þetta fína skrifborð :) ég er hæst ánægð :) :) Svo seinna meir gæti verið hægt að squeeeeeza inn eins og einu litlu stelpu rúmi :) við ætlum nefninlega að búa hér þangað til húsfrúin er búin með háskólanámið! og enn og aftur þá hlakka ég svo geeeeðveikt til að byrja í háskólanum! er alltaf að skoða kúrsana í listfræðinni og langar bara mest að mæta bara í tíma... á morgun.. NÚNA!

jæja jæja.... annað í fréttum... ég er ofsa dugleg í ræktinni... mæti á hverjum degi og stundum 2x á dag!!! það var nú samt bara tilfallandi í gær... skellti mér í skvass með Kollu and it's been a looooong long time! en það var samt brjálað gaman - gaman að gera e-ð með Kollu líka, langt síðan við höfum verið að brasa e-ð saman...

Ég fór líka í afmæli til Hildar á laugardaginn og þar var sko stuð... þó svo ég hafi mætt soldið mikið of seint (kenni herbergja-smíðinni um það!). Ég hitti þar Erlu skvísu - það var toppurinn því ég er ekki búin að hitta hana síðan ég var komin svona 3 mánuði á leið... s.s. sást ekki einu sinni á mér! vá hvað það er langt síðan því Margrét Ýr er orðin 7 mánaða pæja... Erla er á kafi í ræktinni og veit ég varla um duglegri manneskju en hana - hún er að stefna á fitness í apríl svo þið verðið að fylgjast vel með... Ég hitti nú fleiri í partýinu... þar voru líka Karó, Hanna, Kolla, Rut, Hildur að sjálfsögðu, Teitur, Pétur og Kiddi... man kannski ekki aaaalveg meira enda er minni mitt frekar gloppótt... svo var líka strákurinn sem hélt að hann væri að stjórna Singstar.... og söng mjjjög oft... mjjjjöööög illa!!

Ég fór með Margréti í skoðun á mánudaginn... eða svona aukamælingu... þar bar helst til tíðinda að hún var hálfum cm minni en í 6 mánaða skoðuninni! haha... aðallega vegna þess að hjúkkan sem mældi hana fyrir mánuði... teygði kannski aðeins of mikið úr henni... alaveganað þannig að ég horfði á 2-3 cm bil við höfuðið!!! Þannig að stúlkan fer stækkandi EKKi minnkandi... so don't worry !!!

jæja já... Við litla familían ætlum að skella okkur á klaustur á fös... Binni að eltast við veiðidag og Margrét að eltast við að amman er í fríi aldrei slíku vant! nú og ég fylgi bara með... aðalfæðan hennar litlu er víst í mér!

ég fór að láta skrá mig atvinnulausa í gær... mér leið eins og mesta aumingja í heiminum... er ekki viss um að ég fari alla leið í þessum málum.... því auglýsi ég hér með eftir vinnu.... haha - en annars án grína... þá væri ég alveg til í að fá vinnu sem ég get unnið á kvöldin eða heima eða bara e-ð... ALLT annað en vera á bótum...

jæja nóg af þvaðri í dag... er búin að skrifa svo mikið að ég þarf örugglega ekki að blogga fyrr en eftir viku!

litla prinsessan er vöknuð og ég er að segja ykkur það að hún er það krúttlegasta í heiminum... grallari :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2005 19:00:40 / Sirrý

"KLUKK"

Klukkuð 2 x... ég þarf ekkert að skrifa 15 atriði samt????

hmmmm

  1. ég á spiderman sokka

  2. bakaði köku í gær

  3. átti einu sinni Golf

  4. gleymdi myndavélinni minni hjá Kristu áðan

  5. ég fór í 50 mín brennslu í morgun

  6. mér finnst doritos best

  7. ég vann einu sinni í spjótkasti...

  8. ég fór á 1.des ball í sjallanum þegar ég var 15 ára...

  9. mér finnst geeðveikt gaman í blaki

  10. ég var einu sinni rekin heim úr píanótíma hjá Sigga Dan fyrir að vera með tyggjó í tíma

Vona að þetta hafi verið nógu gagnslaus tíu atriði... ;)

eitt að lokum... rófur eru geeeðveikt góðar ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.09.2005 22:16:32 / Sirrý

N.Y.

New York eða hvað!
Mig langar allaveganað geeeðveikt að fara... Gunz og Halla voru að koma heim í nótt... morgun... e-ð og ég er búin að far í heimsókn, fá ferðasöguna og myndir... líka myndavélina sem þau keyptu fyrir mig úti :) TAKK :) hún er sko geeeðveikt flott... sko vídjókamera! og bara gama... svo fékk Margrét líka smá gjöf :) ... fengum líka kvöldmat hjá þeim :)

ég er svo þreytt að ég er aaaalveg að sofna... klukkan er samt bara rétt rúmlega tíu!

jahérnahér... jæja við erum komin heim úr bústað - það var geðveikt gaman þar... strákarnir veiddu nokkra bleika og voru svo þreyttir þegar þeir komu heim að þeir sofnuðu strax eftir matinn... mjjööög skemmtilegir! ;)

æi man ekki meir - er farin að sofa með litlu krúsinni minni... ef við getum þá sofnað fyrir hávaða... held að kallin fyrir neðan sé alveg að missa sig í útvarpinu - gömlu gufunni ef e-ð er!!!

hahahahaha


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.09.2005 18:50:28 / Sirrý

Klaustur

Komum til Kirkjubæjarklausturs í dag um klukkan fjögur.... Margrét varð bílveik og ældi út um allt! jammí! ég vil meina að það sé pabbanum að kenna - ekki aksturslaginu heldur öllum matnum sem var troðið í lítinn malla í morgunmat! ég ætla ekki að fara að tíunda það hér því það var svo mikið... ;)

mér er illt í maganum búið að vera síðan í gærmorgun - ekki nógu gott! en sem betur fer ekki svo illt að ég gat farið í ræktina í morgun... þar var sko tekið á því - kennarinn sem var með okkur í morgun var að leysa hana Heiðu af - kom e-ð óvænt uppá... og vissi víst ekki að þetta var svona byrjendahópur og byrjaði á því að vera með einhver tangó-dansspor inní öllum lyftunum og öllu dæminu... ég verð að viðurkenna það að það var svolítið fyndið að fylgjast með hópnum í stóra speglinum! alveg þangað til hún uppgötvaði mistök sín og sleppti öllum láta-látum... ;) Eftir það var ég sú eina sem var hlægileg... og líka gamla konan sem er hvort sem er ekkert með á neinu... veit ekki alveg hvað hún er að gera þarna vegna þess að þetta er hópur með yfirskriftinni "í form eftir fæðinguna" and she's wayyyy past that!

allaveganað - erum að bíða eftir Líneyju og Atla, litla krús er að lúlla smá og svo brunum við upp í bústað ... veiði hjá strákunum snemma í fyrramálið! segjast ætla að byrja 7 -sjáum hvernig það fer!


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2005 20:38:33 / Sirrý

mánudagur

ó mæ ó mæ ég er svo svöng að ég er að deyja! Af hverju fer ég ekki og elda mat - vegna þess að ég er að bíða eftir að Binni komi heim og eldi vegna þess að hann á daginn í dag... tveir dagar á viku prógramm í gangi... til að hann læri að elda e-ð annað en pylsur!

Annars var Þingeyrar-stelpu partý á laugardaginn, heima hjá Bylgju Dögg og það var baaaara gaman... bara skemmtilegar stelpur og skemmtilegir leikir sem hún Rúna Sirrý sá fyrir (henni líkt!) Já og maður komst að ýmsu um aðra sem mann langaði kannski ekkert að vita... hef því ákveðið að fara aldrei í "ég hef aldrei" aftur með fólki sem ég þekki! hahaha

jæja Binni er kominn og ég er farin að titra ú svengd!

Elska Betra Form tímana mína...


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.09.2005 12:18:49 / Sirrý

úfff

Hey ætlar þú að verða fræg/ur?

ekki ég - ég nenni ekki að vera í slúðurdálkum dagblaðanna vegna þess að Binni hrýtur svo mikið...!

gerði sko útaf við mig í morgun... eða Heiða Björk gerði útaf við mig! var búin að reyna svo mikið á mig að ég gat ekki hugsað heila hugsun - gat ekki labbað og klappað eða beygt mig niður og staðið upp aftur... gat ekki neitt! kapútt...

finn að áhrifin eru enn til staðar - man ekki afhverju ég loggaði mig inn og byrjaði að blogga!

en JEI Inga Lind er komin aftur...


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.09.2005 21:51:56 / Sirrý

hahaha

Keypti mér flottustu buxur í himingeiminum í gær - flottasta jakkann í dag - líka bol og skó í gær líka :) all dressed up for winter ;)

hef ekki mikla trú á blogginu núna... finn það á mér að það verður e-ð vesen! en jæja on I go...

 ég sá líka Óttar á kaffihúsi í dag - veifaði - gleymdi að heilsa upp á hann - en jæja hann dúkkar víst upp seinna... sá allaveganað hana Valeru unnustu hans og barnmóður - aldrei litið hana augum fyrr!

Sá líka Bergrúnu, hún var á fleygi-ferð !!!

Ég fór líka í Betra form tíma í dag - þann fyrsta með fitumælingu og öllum græjum... nú veit ég hvað ég er þung - OMG - voða gress og sæt stelpa sem var með okkur sem er bara stuð :) Þetta leggst allt vel í mig, hlakka mest til að vera ég eftir 2 mánuði! haha

jæja best að fara að setja myndir inn hjá litlu skvís - óska eftir kommentum og ef þið hafið ekkert að segja þá er gestabók á minni síðu eins og ykkar!


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 22:07:40 / Sirrý

it's a beautyful day... don't let it get away...

ekki mjög líklegt að einhver úr bekknum mínum sé að lesa bloggið mitt eða???

Var að koma heim af frábærum næringarráðgjafarfundi eða næringar-ráðgjafar-fundi er ekki betra að lesa það þannig? Bara brillijant maður sem var með hann og hann bara sagði mér alveg nákvæmlega það sem ég vissi en þurfti að fá að vita aftur...

eníhú þá vorum ég og Binni að skoða íbúðir á netinu eins og við gerum svoooo oft... rákumst á eina sem er alveg eins og okkar bara ljótari og með ljótara þvottahús... eðaaa það sagði ég allaveganað fyrst - svo fattaði ég að íbúðin er í stigaganginum við hliðina á okkur... og deilir þvottahúsi!

Stelpan mín er draumur að vanda... er að rembast við að reyna að standa upp í rúminu sínu and I kid you not! hún kemst alltaf úr sitjandi yfir á hnén með því að toga í hliðina sem fellur niður og rembist svo og rembist við að reyna meira... eins gott að henni takist það ekki strax...

Er að fara að hitta Lóu á morgun... smá búðarráp kannski :) hlakka til að hitta stelpuna mína :)

svo er næst á dagskrá að vera ógó dugleg að mæta í ræktina og finna tíma til að gera hlutina sem þarf að gera eða - hætta að flýja tímann sem geft til þess kannski?!?

xxx


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2005 20:21:02 / Sirrý

stress - yfir hverju?

Ég braut sko nögl í gær - aldrei brotið nögl svona illa á ævinni held ég! úff það var vont...

ég er svo geðveikt mikið að pæla í hittingi hjá "fermingarárganginum" mínum frá Þingeyri... það myndi aldrei gerast fyrr en eftir ár eða e-ð en samt ég hef svo miklar áhyggjur af því að það komi enginn til með að skipuleggja neitt... vantar að vita hvort einhver sé að skipuleggja e-ð og e-mail hjá krökkunum... svo ef Sigga, Daðey, Sveinbjön, Úlfar, Marý, Gunni, Óttar, Egill, Geiri, Krista, Lóa, Gunnar Óla (eru það ekki allir? ) eru að lesa... sendiði e-mail á agnes@btnet.is">sagnes@btnet.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8